Hvernig get ég hjálpað?

Styrktarsíða!

Þú getur lagt okkur lið með millifærslu á bankareikning HHB.

Banki: 0515-26-250000
Kt: 490311-0250

Sjá nánar hér..

Hvað er Hrói Höttur barnavinafélag?

Það er von að þú spyrjir.

Tilgangur félagsins er að veita íslenskum börnum stuðning sem eru í grunn- og leikskólum.

Markmiðið er að stuðla að því að grunnþarfir barna til nauðsynja séu uppfylltar s.s skólagögn, matur, frístundaheimili, fatnaður, íþróttaiðkun og fleira.

Öll vinna á vegum HHB er unnin af sjálfboðaliðum.

100% af því sem safnast fer alltaf beint og óskert til barnanna!

Hvað er HHB ekki?

HHB er alls ekki að sækjast eftir upplýsingum um hvaða börn hljóta aðstoð félagsins.

Það er einmitt stefna HHB að vinna þannig með skólanum að beiðnin um aðstoð, komi alltaf frá kennara til skólastjóra og þaðan til HHB og að sú beiðni sé nafnlaus.

Það eru einmitt kennararnir sem eru í bestri aðstöðu við að meta hvort og hvaða börn þurfi mögulega á aðstoð HHB að halda.

Við leggjum mikið upp úr því að virða persónuvernd "okkar barna".

Hver er hugmyndafræðin?

Góð spurning, þetta er það sem við lögðum upp með í upphafi!

Hugmyndin er þessi:

1. Hópur fólks er með þá hugmynd að stofna sjóð til styrktar börnum.

2. Þessi sjóður mun styrkja börn sem eiga erfitt heima fyrir, með því móti að t.d. sjá um að greiða fyrir heitan mat í hádeginu, sjá um nesti, kaupa úlpu,námsbækur, íþróttaiðkun eða bara það sem þurfa þykir og kemur sér best fyrir barnið.

3. Sjóðurinn mundi styrkja og aðstoða þau börn sem hann fengi ábendingar um að þyrftu aðstoð. Ábendingar kæmu frá kennurum og/eða öðrum starfsmönnum skóla eða þannig tengdum stöðum sem þekkir til og vinnur með barninu og veit hvað það vanhagar um.

4. Þessi sjóður yrði fjármagnaður af aflögufærum aðilum og fyrirtækjum með beinum fjárstuðningi eða öðrum hætti sem gæti nýst börnum.

5. Þetta væri ekki sjóður sem einstaklingar gætu sótt til peninga úthlutanir eða þannig og hann yrði ekki blásinn út í fjölmiðlum.

6. Heldur yrði þetta beinn stuðningur til barnanna sjálfra, tryggja þeim sjálfum aðstoð.

Börn eru framtíðin!

Það verða þau sem stjórna landinu, verða læknar, bankastjórar og kennarar eftir nokkur ár.
Ef við hlúum vel að börnunum okkar skila þau betur áfram til samfélagsins og hlúa betur að sínum börnum.

Styrkja Hróa Hött barnavinafélag




  • 500 2000 5000 Önnur upphæð

  • Greiðsluseðill
    Millifæra
    Greiðslukort

    Ég samþykki skilmála (lesa)

    Ath. rafrænn greiðsluseðill greiðist í heimabanka

    • Banki: 0515-26-250000
      Kt: 490311-0250


  • * verður að fylla út

Meðal styrktaraðila HHB ...

              

    

Endurgreiðslur vegna stuðnings við HHB eru ekki í boði

laugardagur 19 maí 05 2012
Nýjustu fréttir
A4 Gengur til liðs...
Nú hefur A4 bæst í hóp stuðningsfyrirtækja og styður...
ProOptic Styrkir HHB...
Nú hefur ProOptic bæst í hóp stuðningsfyrirtækja og styður...
Hugmyndin með Hróa...
Í fyrra skiptið var það drengur. Eftir því var tekið...